Jólatónleikar í Silfurbergi

Stefán Hilmarsson heldur árlega jólatónleika sína í Silfubergi Hörpu þann 15. desember. Sérstakir gestir Stefáns í ár verða Ágústa Eva, Birgir Steinn, Kristina Bærendsen frá Færeyjum og hin bráðefnilega söngkona Hrafnhildur Magnea, sem notast við listamannsnafnið Raven. Á tónleikunum verða að vanda flutt lög af jólaplötum Stefáns, „Í desember“ og „Ein handa þér“, í bland við sérvalin stemmnings- og hátíðarlög af ýmsum toga. Hljómsveitin verður eins og ávallt skipuð annáluðum sérfræðingum og galdramönnum.

Hægt er að nálgast miða hér